Landeigendur-fasteignagjöld-jafnrétti?

 

Ég hef velt því fyrir mér hvort ekki sé verið að brjóta jafnrétti þegar sumarbústaðaeigendur greiða mikið hærri gjöld af jarðarskika sem þeir eiga  en bændur sem eiga í flestum tilfellum landið við hliðina. Ef bændur telja sig eiga afrétti og fjöll svo sem t.d. Esjuna hvers vegna greiða þeir ekki fasteignagjöld á við þá sem eiga lóð í borg eða bæ eða sumarhúsalóð sem þeir hafa oft keypt dýru verði af einhverjum bónda, hvert er réttlætið?

Svo selja bændur landið sitt mjög dýru verði eins og staðan er í dag og ég tala nú ekki um ef  einhver hlunnindi fylgja svo sem hitaréttur, laxveiði, vatn og margt fleira.

Mín skoðun er sú að þeir sem eiga land greiða allir sama verð á hektara á sambærilegum stöðum á landinu. Svo er það mjög óeðlilegt að bændur eigi land langt inn í óbyggðum, þó að nokkrar rolluskjátur hafi einhverntíman bitið þar gras og einhverjir frekir aðilar hafi sölsað undir sig landið. Nú er kominn tími til að skila því til þjóðarinnar eða einfaldlega greiða fullan skatt af því.


Laun þingmanna.

Það er alveg ótrúlegt að það viðgangist enn á 21. öld að þingmenn geti verið í fleiri störfum. Það má ætla að störf þeirra séu það léttvæg og ef ekki þá eru þeir einfaldlega að skrópa í vinnu A og mæta í vinnu B. Hvernig er t.d. hjá þeim þingmönnum sem eru líka í bæjarstjórn þegar fundir eru á báðum stöðum á sama tíma? Jú ef þingið er valið þá þarf að fá varamann í staðinn og báðir eru á launum.Síðan eru þessir þingmenn í mörgum launuðum nefndum svo það er augljóst að þeir eru að hirða laun sem þeir eiga ekki rétt á. Þarna ættu fjölmiðlar að taka á því. Þetta er ekkert nema græðgi og vinnusvik.

Fötin hans Björns Inga

Ég er með góða hugmynd fyrir Framsóknarflokkinn. Nú er Björn Ingi hættur og væntanlega þarf að finna annan kandidat fyrir hann í næstu kosningum. Þið í framsókn fáið bara fötin því hann Björn sagðist vera orðin of stór í þau og finnið annan sem passar í þau. Þetta yrði góður sparnaður fyrir Framsókn og þar að auki ekki neinum skuldbundnir.

Bananalýðveldið heldur sínu striki.

 

 Ég skrifaði um héraðsdómarakjörið og þá sem gáfu ráðherra umsögn um þá hæfustu. Ég var að vona að þeir sem umsögnina gáfu og voru hunsaðir segðu einfaldlega af sér eins og þeir voru einhverjir búnir að tala um. Nei þeir hafa ekki gert það ennþá og þá hugsar maður eru þeir á svo góðum launum fyrir eða hvað aftrar þeim í að sýna ráðherra hvar Davíð keypti ölið og ganga út. Hvað er að? Eru menn hættir að fara eftir sannfæringu sinni og standa í báða fætur. Hverjum er að treysta? Alla vega ekki pólitíkusum það sést einfaldlega á atburðum síðustu daga.


Íþróttastyrkir til starfsmanna Kópavogs.

Nú um áramót fengu flestir starfsmenn Kópavogsbæjar uppbót í launaumslagið og er það vel. Þar með er bærinn búin að samþykkja okkur kennara sem láglaunastétt.Eitt vil ég benda ykkur starfsmönnum á að styrkur til íþróttaiðkunnar er sagður allt að 16 þúsund krónur en ekki er tekið fram að þið fáið aðeins 1/3 af útlögðum kostnaði. Þannig að sá sem greiðir 30 þús í æfingagjöld fær aðeins 10 þúsund . Bærinn hefði þarna átt að sýna sóma sinn í að greiða öllum sem eru í líkamsrækt 16 þús því það skilar sér margfalt til baka það er ég búin að sá í gegnum árin því fólk er í betra formi og skilar sinni vinnu betur.


Skemmdarverk.

Það er óþolandi að þeir sem ganga um og eyðileggja eigur annarra sleppi nánast brosandi ef þeir nást.  Hvernig væri að þú Björn Bjarnason ráðherra gerðir nú alvöru úr því að stofna apparat sem heitir t.d. syndaaflausn (ekki herskylda). Þessir aðilar færu í að lagfæra kauplaust það sem þeir hafa skemmt og síðan í nokkurs konar herþjálfun (líkamsæfingar) með.  Skemmdarvargarnir eru yfirleitt  karlmenn sem hafa ekkert að gera og þurfa þess vegna að fá útrás á einhverjum vettvangi. Gaman væri að prófa þetta og skora ég nú á þig Björn að láta verða af einhverju í takt við þetta í stað þess að senda þessa aðila heim ( þeir eru óðara komnir aftur á vettvang) eða í fangelsi. 

 


Pisakönnun

Hvernig væri nú að fræðsluyfirvöld skoðuðu hvort einhver fylgni sé á milli árangurs samkvæmt niðurstöðum Pisa og fjölda menntaðra kennara á bak við þá nemendur sem um er að ræða. Góður árangur var í Kópavogi og ég held að þar séu um 94% kennara með réttindi fleiri en á mörgum öðrum stöðum.

Bananalýðveldi

Það er ótrúlegt að þið æðstu menn þjóðarinnar leyfið ykkur að ráða vini og vandamenn í störf svo sem embætti héraðsdómara í andstöðu við umsögn fagaðila sem eiga að gefa misvitrum stjórnmálamönnum faglega ráðgjöf. Þetta er ólíðandi fyrir fólkið í landinu og þið sem sitjið í dómnefndinni ættuð að segja af ykkur hver og einn í mótmælaskyni.
Svo erum við að hneyklast á forseta Pakistan vegna afskipta hans af dómskerfinu í því landi

Framhald DHL.

Jæja nú er sendingin búin að fara frá Íslandi til Belgíu síðan til Frakklands og þaðan til USA sem hún fer fylki úr fylki. Vika + 1 dagur og ekki er sendingin dýra enn komin til skila. Verslar maður við þessa aðila aftur?

DHL hangikjötssending

Ég sendi hangikjöt og smávægilegt fleira með DHL sendingu og hélt að þessi frábæra hraðsending gengi 1-2 og 3. sendingin kostaði jafn mikið og kjötið. Ég hafði heyrt að fólk fengi sendinguna mjög fljótt jafnvel næsta eða þar næsta dag svo ég sló til. Nú sendingin fór af stað 12 des. og hefur ekki skilað sér til Vermont USA nú þann 15. Ég fór að forvitnast og viti menn fyrst fór pakkinn til Belgíu síðan til Parísar og svo til Chicago og hvar er hann nú? Var kanske best að senda hann á miklu lægra verði með venjulegum pósti og miklu lægra verði?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband